Sauðfjárbændur mótmæla
Landssamtök sauðfjárbænda mótmæla því harðlega að ríkið hætti að niðurgreiða refaveiðar. Gangi það eftir er hætta á því að sveitarfélög muni ekki lengur standa fyrir skipulögðum refaveiðum. Það hefur í för með sér verulega fjölgun á ref með ófyrirséðum afleiðingum fyrir lífríkið í landinu.
Sindri Sigurgeirsson formaður Landssamtaka sauðfjárbænda segir ákvörðun umhverfisráðherra alveg taktlausa.
„ Í mörg ár hefur Búnaðarþing ályktað um refa- og minkaveiðar, þar sem lögð hefur verið áhersla á að ríkið auki það fjármagn sem farið hefur til niðurgreiðslu veiðanna. Áhersla hefur verið lögð á það af hálfu bænda að halda þurfi refastofninum í skefjum vegna þess skaða sem hann veldur á lífríki landsins. Það er með ólíkindum að nú sé tekin ákvörðun um spara það litla fjármagn sem farið hefur í veiðarnar. Skynsamlegra hefði verið að auka þetta fjármagn, sem skilar í raun auknum tekjum í rikissjóð í gegnum virðisaukaskatt“.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.