Sauðárkrókur, Sauðárkrókur Blönduós kallar...

Jóhann og Pétur staddir á Blönduósi birtast á skjánum á Króknum. Mynd; Farskóli.is

Farskólinn hefur tekið í notkun nýjan fjarmenntabúnað í nýju námsveri fjarnema á Þverbarut 1 á Blönduósi. Það eru Húnavatnshreppur og Blönduóssbær sem standa að námsverinu.

Úr Farskólanum er annars það að frétta að  nýhafið er námskeið fyrir starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi og stendur það fram í febrúarbyrjun. Þar eru 15 starfsmenn í námi. Grunnmenntaskólinn hefst á Sauðárkróki mánudaginn 16. nóvember og er þátttaka frábær. Fræðsluverkefnið Eflum byggð á Blönduósi og Skagaströnd er á fullri ferð og því lýkur næsta vor. Á Hvammstanga lýkur Grunnmenntaskólanum nú fyrir áramót.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir