Samstaða um endureisn - opinn fundur Samfylkingarinnar á Hvammstanga og Sauðárkróki
Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur land undir fót í vikunni og heldur í fundaferð um allt land, þá þriðju á sjö mánuðum þar sem landsmönnum er boðið uppá milliliðalaust samtal um þau stóru og viðamiklu úrlausnarefni sem unnið er að.
Fimmtudaginn 11. febrúar funda þau Guðbjartur Hannesson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Skúli Helgason á Hvammstanga í hádeginu og á Sauðárkróki um kvöldið. Fundurinn á Hvammstanga er kl. 12:00 á Kaffi Síróp og verður fundarmönnum boðið upp á súpu að hætti hússins. Fundurinn á Sauðárkróki hefst kl. 20:00 og er hann haldinn í Ströndinni við Sæmundargötu. Allir eru velkomnir á fundina.
Fundaferðin ber yfirskriftina samstaða um endurreisn en það er eitt af stóru verkefnunum að vinna að samstöðu landsmanna um endurreisn og bætt og betra samfélag. Einn veigamesti þátturinn í endurreisn efnahagslífsins er að ná endum saman í ríkisfjármálum, án þess að ganga hart að velferðarkerfinu og þeim sem veikast standa og helst þurfa því á stuðningi þess að halda. Ríkisstjórnin hefur staðið fyrir ýmis konar úrræðum sem nýst hafa fjölskyldum og einstaklingum í kjölfar efnahagshrunsins, auk þess hefur verið unnið að stefnubreytingu á fjölmörgum sviðum svo sem í skattamálum, umhverfismálum og sjávarútvegsmálum. Þá hefur ríkisstjórnin unnið jafnt og þétt að mikilvægum verkefnum í atvinnumálum, verkefnum sem munu vega þungt í endurreisninni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.