Sagnamaðurinn Einar Kárason í Kakalaskála í kvöld, 21. október
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
21.10.2023
kl. 08.21
Sagnamaðurinn Einar Kárason fjallar um fólk og atburði frá Njálsbrennusögu ásamt Flugumýrartvisti eins og honum einum er lagið í Kakalaskála í kvöld, 21. október, kl. 20:00. Miðaverð á sýninguna er 3.900 kr. Opið á barnum og húsið er opnað kl. 18:30. Boðið verður upp á fiskisúpu eða grænmetissúpu að hætti Edu og Ingu Dóru fyrir sýninguna og kostar fiskisúpan 3.000 kr. og grænmetissúpan 2.500 kr á mann. Pantanir í síma 865-8227 eða á kakalaskali@gmail.com
Verið Velkomin!
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.