Rjúpnaveiðitímabilið byrjar 20. október
Á vef Umhverfisstofnunar (www.ust.is) segir að Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra hefur fallist á tillögu Umhverfis-stofnunar að fyrirkomulagi rjúpnaveiða ársins 2023. Umhverfisstofnun leggur til að veiðar verði heimilar sem hér segir: Frá og með 20. október og til og með 21. nóvember frá og með föstudögum til og með þriðjudögum á því tímabili.
Tillögur þessar eru lagðar fram að undangengnu ítarlegu og faglegu samráðsferli við Náttúrufræðistofnun Íslands, Fuglavernd og Skotveiðifélag Íslands og eru fyrsta skrefið í umbyltingu veiðistjórnunar-kerfis fyrir rjúpnastofninn og byggja þær á aðferðarfræði nýs stofnlíkans.
Stjórnunar- og verndar-áætlun fyrir rjúpu í vinnslu
Síðastliðið ár hefur farið fram vinna við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar rjúpu og nýtt stofnlíkan (IPM – integrated population model) fyrir rjúpnastofninn. Í lok árs 2022 gerði Umhverfisstofnun tíma-bundinn samning við Dr. Fred Johnson, bandarískan sér-fræðing í líkanagerð og veiðistjórnun við háskólann í Árósum og háskólann í Flórída. Fred hefur áratuga reynslu af gerð stjórnunar- og verndaráætlana fyrir fugla- og dýrastofna og er einn af frumkvöðlum í heimi aðlögunarstjórnunar (adaptive management). Hann hefur undanfarna mánuði leitt vinnu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir rjúpnastofninn og unnið að nýju og endurbættu stofnlíkani sem byggt er á gildum og veiðistjórnunarmarkmiðum vinnuhóps verkefnisins.
Við gerð tillagnanna lagði Umhverfisstofnun til grund-vallar niðurstöður úr nýju stofnstærðarlíkani fyrir rjúpna-stofninn og mat á æskilegum fjölda veiðidaga. Líkanið byggir á gagnasafni áranna 2005 - 2023 og miðar að því að veiðar ársins muni ekki hafa þau áhrif að stofninn fari undir meðalstofnstærð sömu ára. Niðurstaðan er að rjúpna-stofninn í ár þoli 25 veiðidaga.
Umhverfisstofnun biðlar sérstaklega til veiðimanna að sýna hófsemi við veiðar. Mikilvægt er að allir hagsmunaaðilar komi að því hvatningarátaki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.