Peysudagur á mánudaginn
Slysavarnafélagið Landsbjörg ætlar að halda peysudag hátíðlegan mánudaginn 11. maí n.k. og hvetur félagsfólk til þess að klæðast rauðu peysunum þegar það mætir til vinnu eða skóla.
Sú hugmynd kom frá Hilmari Snorrasyni, skólastjóra Slysavarnaskóla sjómanna, að halda árlegan "Peysudag" félagsins. Ætlunin er að þann dag skrýðist félagsfólk merktum fatnaði (t.d. rauðu flíspeysunum) við sín daglegu störf. Þannig má gera félagið og meðlimi þess sýnilega víða um þjóðfélagið.
11. maí þykir heppilegur "Peysudagur" þar sem hann hefur sterka skírskotun í sögu félagsins en hann var áður svokallaður lokadagur
Í bókinni Mannslíf í húfi eftir Einar S. Arnalds segir m.a.:
"Víða um landið var lokadagurinn valinn til merkjasölu fyrir félagið, árið 1955 voru um 100 deildum send merki til sölu þennan dag; 11. maí varð í rauninni fastur fjáröflunardagur félagsins. Þá stóðu kvennadeildirnar fyrir kaffisölu og síðar fór fram sala á happdrættismiðum félagsins á þessum degi."
/Húnar.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.