Opnað hefur verið fyrir tilnefningar fyrir Viðurkenningarhátíð FKA 2023 – Hafðu áhrif á val á FKA viðurkenningarhöfum

FKA, félag kvenna í atvinnurekstri, viðurkenningarþáttur á hringbraut. Aðsend mynd
FKA, félag kvenna í atvinnurekstri, viðurkenningarþáttur á hringbraut. Aðsend mynd

Hvaða þrjár konur verða heiðraðar og valdar úr hópi tilnefndra kvenna kemur í ljós á næstu FKA Viðurkenningarhátíð FKA á Grand Hótel þann 26. janúar 2023, þá mun koma í ljós hvaða konur hljóta FKA viðurkenninguna, FKA þakkarviðurkenninguna og FKA hvatningarviðurkenninguna 2023.

Félag kvenna í atvinnulífinu heldur markvisst áfram að skrifa konur inní söguna

FKA Viðurkenningarhátíðin er haldin árlega við hátíðlega athöfn þar sem konur úr atvinnulífinu eru heiðraðar. Að vanda verða veittar viðurkenningar á hátíðinni til þriggja kvenna sem hafa verið konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd.

FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu sem dómnefnd mun meta og á endanum velja konur sem hljóta FKA þakkarviðurkenningu, FKA viðurkenningu og FKA hvatningarviðurkenningu.

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar vegna Viðurkenningarhátíðar FKA 2023. Hægt er að tilnefna konur í öllum flokkum eða bara eina til og með 24. nóvember 2022.

Tilnefna HÉR á heimasíðu FKA.

Hvað eiga þær Guðbjörg í Marel, Edda Sif hjá Carbfix og Bryndís Brynjólfsdóttir í Lindinni á Selfossi sameiginlegt?

Mikilvægt er fyrir komandi kynslóðir að hafa fjölbreyttar fyrirmyndir til að máta sig við og konur sem hafa verið heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA gegnum tíðina hafa verið sérstök hvatning og fyrirmyndir. Líkt og Guðbjörg Heiða, Edda Sif og Bryndís, svo dæmi séu tekin, eru konur sem hafa rutt brautir og sýnt athyglisvert frumkvæði og átt að baki eftirtektarvert ævistarf. Um er að ræða fjölbreyttan hóp kvenna sem hafa verið tilnefndar og heiðraðar og þá má segja að það sem sameinar þær allar er að einhver þarna úti varði sinni dýrmætustu auðlind, tímanum sínum í að senda inn tilnefningar. Við hvetjum ykkur öll að tilnefna þannig að ólíkar konur af landinu öllu komist á blað og muna að þær eiga allar erindi.

Framlína íslensks viðskipta- og atvinnulífs mæta á Viðurkenningarhátíð FKA

Öll kyn úr framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs mæta á Viðurkenningarhátíð FKA. Vegna aðstæðna í samfélaginu á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru hefur Viðurkenningarhátíð Félag kvenna í atvinnulífinu FKA verið haldin hátíðleg í sjónvarpsþætti. Dómnefnd skipuð sjö aðilum fer yfir allar tilnefningar og verða úrslit kynnt á stórglæsilegri Viðurkenningarhátíð FKA þann 26. janúar 2023 á Grand Hótel Reykjavík.

Hér að neðan má sjá lista yfir viðurkenningarhafa síðustu ára –frá upphafi árið 1999.

KRÍTERÍA – FKA Viðurkenningin er veitt fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Hafrún Friðriksdóttir
María Fjóla Harðardóttir
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
Margrét Kristmannsdóttir
Erna Gísladóttir

Guðrún Hafsteinsdóttir
Birna Einarsdóttir
Guðbjörg Matthíasdóttir
Liv Bergþórsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir

Rannveig Grétarsdóttir
Aðalheiður Birgisdóttir
Vilborg Einarsdóttir
Rannveig Rist
Steinunn Sigurðardóttir

Halla Tómasdóttir
Ásdís Halla Bragadóttir
Katrín Pétursdóttir
Aðalheiður Héðinsdóttir
Svava Johansen

Elsa Haraldsdóttir
Þóra Guðmundsdóttir
Hillary Rodham Clinton

KRÍTERÍA – Hvatningarviðurkenningin er veitt konu í atvinnulífinu fyrir athyglisvert frumkvæði eða nýjungar.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Edda Sif Pind Aradóttir
Fida Abu Libdeh
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Helga Valfells

Dr. Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch
Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir
Kolbrún Hrafnkelsdóttir
María Rúnarsdóttir
Rakel Sölvadóttir

Helga Árnadóttir, Signý, Tulipop
Árný Elíasdóttir, Inga Björg, Ingunn B. Vilhjálms(Attendus)
Margrét Pála Ólafsdóttir
Marín Magnúsdóttir
Agnes Sigurðardóttir

Sigríður Margrét Guðmundsdóttir
Guðbjörg Glóða Logadóttir
Jón G. Hauksson
Edda Jónsdóttir
Freydís Jónsdóttir

Guðrún Hálfdánsdóttir
Íris Gunnarsdóttir/Soffía Steingríms
Lára Vilberg

KRÍTERÍA – Þakkarviðurkenningin er veitt konu fyrir eftirtektarvert ævistarf sem stjórnanda í atvinnulífinu.

Viðurkenningarhafar fyrri ára eru:

Katrín S. Óladóttir
Bryndís Brynjólfsdóttir
Anna Stefánsdóttir
Sigríður Ásdís Snævarr
Hildur Petersen

Hafdís Árnadóttir
Sigríður Vilhjálmsdóttir
Guðný Guðjónsdóttir
Guðrún Edda Eggertsdóttir
Guðrún Lárusdóttir

Erla Wigelund
Dóra Guðbjört Jónsdóttir
Bára Magnúsdóttir
Guðrún Birna Gísladóttir
Guðrún Agnarsdóttir

Guðrún Erlendsdóttir
Rakel Olsen
Guðrún Steingrímsdóttir
Vigdís Finnbogadóttir
Jórunn Brynjólfsdóttir

Unnur Arngrímsdóttir
Bára Sigurjónsdóttir

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir