Ný brunavarnaáætlun í Húnaþingi vestra

Brunavarnir Húnaþings vestra. Mynd: hunathing.is
Brunavarnir Húnaþings vestra. Mynd: hunathing.is

Greint er frá því á vef Húnaþings vestra að ný brunavarnaáætlun Brunavarna Húnaþings vestra (BHV) hafi verið samþykkt og undirrituð af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), sveitarstjóra Húnaþings vestra og slökkviliðsstjóra BVH.

Brunavarnaáætlun er unnin af slökkviliðsstjóra og hefur það markið að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þær áhættur sem eru í sveitarfélaginu. Áætlanirnar gefa sveitarstjórn og íbúum yfirlit yfir starfsemi og ástand slökkviliðsins og geta því orðið grunnur að gæðastjórnun um endurbætur, til dæmis hvað varðar búnað, menntun og samstarf við aðra aðila.

Brunavarnáætlun Brunavarna Húnaþings vestra má nálgast hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir