NEI TIL EU í Noregi
Í gærmorgun fór sendinefnd níu Íslendinga til Noregs til að taka þátt í aðalfundi NEI TIL EU í Noregi, en það eru systursamtök HEIMSSÝNAR á Íslandi. Í sendinefndinni eru m.a. þrír þingmenn frá jafn mörgum flokkum.
Heimsókn Íslendinganna hefur vakið mikla fjölmiðlaathygli í Noregi og Ásmundur Einar Daðason, nýkjörinn formaður Heimssýnar m.a. verið í sjónvarps- og útvarpsviðtölum hjá NRK og víðar. Ísland er eitt meginþema aðalfundarins, sem haldinn er á Gardemoen, að þessu sinni og halda íslensku fulltrúarnir nokkrar ræður og taka þátt í málstofum um Ísland.
Á mánudag munu fulltrúar Heimssýnar funda með NEI TIL EU á skrifstofu samtakanna í Osló og með systurflokkum Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna.
Í sendinefndinni eru:
Ásmundur Einar Daðason alþingismaður, Vigdís Hausdóttir alþingismaður, Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður, Kolbrún Halldórsdóttir fv. Umhverfisráðherra, Reynir Jóhannesson starfsmaður Heimssýnar og félagi í SUS, Páll Vilhjálmsson blaðamaður, Ragnar Friðrik Ólafsson sálfræðingur, Guðjón Ebbi Guðjónsson frá ungum Framsóknarmönnum og Brynja Björg Halldórsdóttir fv. formaður Ungra vinstri grænna.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.