Myndauppboð til styrktar Þuríði Hörpu

Guðbjörn Benjamínsdóttir og Vilborg og Margrét Traustadætur.

 Á markaði sem haldinn var samhliða Hippaballi í Ketilási um helgina buðu  systurnar Vilborg og Margrét og Áshildur Öfjörð frá Sólgörðum upp nokkrar myndir og rann ágóði myndanna um 84.000 krónur óskiptur til Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur.

Þá gáfu Rebekka H. Halldórsdóttir-Ríkey Þ. Jóhannesdóttir, Bjarney  Gunnarsdóttir  og Kolbrún Tanja Chillak ágóða af sinni sölu 2211 krónur  til söfnunarinnar.
Þuríður mun nú um helgina halda til Indlands í stofnfrumumerðferð en  nánar er fjallað um ferð Þuríðar á síðu 6 í Feyki á fimmtudag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir