Mildir ágústdagar framundan
Veðurspámaðurinn Einar Sveinbjörnsson heldur úti skemmtilegu veðurbloggi. Einar hefur nú gefið út helgarspána og segir hann að allt útlit sé fyrir blíða ágústdaga. Það ætti því að viðra vel á Kántrýdaga og Hólahátíð og eins ykkur hin sem ætlið til berja eða jafnvel að skella ykkur í útilegu.
Spá Einars.
Föstudagur 14. ágúst:
Lítið um að ver hér við land, minniháttar hæðarhryggur hér vesturundan. Vindur verður því hæglátur og áttleysa. Fremur bjart yfir að líta á mest öllu landinu og úrkomulaust. Þó skýjað að mestu við Breiðafjörð og víða á Vestfjörðum og spáð er minniháttar vætu þar a.m.k. um tíma. Þá verður þokan þaulsætin við Austfirði. Hitinn verður þetta 14 til 18 stig allvíða, en hafgola og svalara við sjávarsíðuna.
Laugardagur 15. ágúst:
Hæðarhryggurinn svo að segja yfir landinu og léttskýjað framan af degi um mest allt land. Bólstramyndun síðdegis og sums staðar fjallaskúrir t.a.m. á suðurhálendinu, en síður við sjóinn. Vindur hægur, lítið eitt austlægur ef eitthvað er. Svipaður hiti áfram, en kólnar nokkuð í næturhúminu þegar svona stillt er.
Sunnudagur 16. ágúst:
Lítið eitt ákveðnari austanátt við suðurströndina vegna myndarlegrar lægðar sem stefnir á Bretlandseyjar. Í stórum dráttum góðviðri hér áfram. Fyrir utan þokubakka með Austfjörðum og norðausturströndinni ætti viða að sjást til sólar og úrkomulaust er að sjá um land allt. Fyrirvari þú um síðdegisskúri hér og þar. Hiti sæmilegur, ekkert sérlega hlýtt, en milt engu að síður.
Hægt er að lesa blogg Einars hér
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.