Mikið af handverki ratað í jólapakka
Að þessu sinni eru það hjónin Stefanía Ósk Stefánsdóttir og Kjartan Erlendsson á Sauðárkróki sem segja lesendum Feykis frá því hvað þau eru að fást við. Stefanía er fædd og uppalin austur í Breiðdal en maðurinn hennar, Kjartan Erlendsson, er Austur-Húnvetningur. Þau fluttu á Krókinn árið 1971 og ætluðu sér að vera hér í eitt ár en hvað eru 50 ár umfram það? Það er Stefanía sem hefur orðið en hún vill byrja á að þakka Unni Sævars fyrir áskorunina.
Hve lengi hafið þið stundað hannyrðir? „Ég var um 6-7 ára þegar ég byrjaði að prófa að prjóna, man eftir að pabbi var að hjálpa mér við það. Mamma kenndi mér svo að hekla og sauma út og svo lærði ég af handavinnukennurunum í skólanum. Ég var 16 ára þegar ég fór á Löngumýrarskóla og þar lærði ég mikið af góðum kennurum, þeim Ásbjörgu Jóhannsdóttur og Margréti Jónsdóttur. Um 14-15 ára aldurinn saumaði ég mér stutt pils og bolerovesti úr rauð-um náttslopp sem ég átti, með kínversku munstri. Ég bað mömmu um að hjálpa mér ekkert nema ég bæði um aðstoð, vildi vita hvað ég væri sjálfbjarga með þetta, ég var mjög ánægð með útkomuna. Kjartan er hagur í höndum. Hann tók sig til árið 2020, eftir mikið veikindabasl, og fór að prófa að tálga fugla. Síðan hafa þeir flogið út úr höndunum á honum. Hann hefur tálgað og málað yfir 40 tegundir. Eru þeir ekki eðlilegir hjá honum?“
Hvaða handavinna þykir þér skemmtilegust? Ég er í svo mörgu, skipti yfir til að breyta til. Ég prjóna mikið peysur og vettlinga, geri það aðallega þegar ég sit við sjónvarpið. Svo er ég að bródera í handklæði og fleira, er einnig í bútasaum. Ég er með nokkrum konum í bútasaumsklúbbi og við hittumst hálfsmánaðarlega. Ég var hér áður mikið í fatasaum en er alveg hætt því.“
Hvað ertu að gera um þessar mundir? „Nú er ég að prjóna peysu á einn ömmustrákinn minn og sauma púða sem ég ætla að gefa litlum tvíburasystrum sem eru langömmustelpurnar mínar. Ég er svo alltaf með letiverkefni, sem ég kalla, núna er ég að prjóna tuskur.“
Hvar færðu hugmyndir? „Héðan og þaðan hér áður fyrr en nú mest af netinu, t.d. Pinterest, þar er allt sem þarf.“
Hvaða handverk sem þú hefur unnið ertu ánægðust með? „Ég veit ekki hvað skal segja. Það er margt en ef ég á að nefna eitt þá eru það peysufötin sem ég saumaði árið 2019, það var þónokkuð verk en ég er mjög ánægð með að hafa gert það, fyrir utan ótal margt fleira. “
Hafið þið hjónin handgert margar jólagjafir í gegnum árin? „Já, ég hef gert mikið handverk til gjafa í gegnum árin og Kjartan hefur verið að gefa fuglana sína tvö síðustu ár.“
Hvað kemur ykkur í sannkallað jólaskap? „Ja, hvað skal segja, það er búið að teygja jólin yfir þrjá mánuði á ári. Fann meira fyrir jólaspenningi þegar ég var barn því þá voru jólin styttri og eplalyktin svo góð. Breyttir tímar,“ segir Stefanía að lokum.
Birst í tbl. 45 Jóla Feykis 2022.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.