Meintur Skagfirðingur vann skemmdarverk á sendibúnaði FM Trölla

Undanfarnar vikur og mánuði hafa útsendingar FM Trölla í Skagafirði legið niðri vegna bilunar og segir á heimasíðu Trölla að í fyrstu hafi verið talið að ástæðan væri breytingar á netsambandi í húsnæðinu sem hýsir sendibúnað FM Trölla í Skagafirði. Voru menn búnir að skoða ýmislegt, spá og spekúlera en allt kom fyrir ekki.

Skemmdarvargurinn gæti líkst þessari mús,
sem reyndar er af erlendu bergi brotin.
Mynd: Shutterstock

„Það var heldur ekki til að hjálpa að tæknistjóri FM Trölla er erlendis, hvar hann býr stóran hluta úr ári og komst því ekki sjálfur á staðinn, heldur reyndi að leiðbeina aðstoðarmönnum við að finna út hvað væri að netsambandinu. Svo var loks fenginn sérfræðingur frá Tengli ehf. til að ganga í málið af þekkingu og krafti til að finna út hvað væri að og laga það. Þá kom í ljós að ekkert var að netsambandinu eins og menn höfðu talið víst, heldur var rafmagnssnúra sú sem flytur rafmagn í tölvu sem sér um að koma hljóði í sendinn, í sundur,“ segir í frétt Trölla og upplýsir því næst hver gerandinn gæti verið: „Líklegast þykir að mús – trúlega af skagfirskum músaættum þar sem mýs fara hægt yfir – hafi nagað í sundur snúruna, en þar sem aðeins einn vír af þremur í snúrunni var skemmdur er líklegt að músinni hafi ekki orðið meint af.“

En nú er búið að gera við skemmdir og FM Trölli farinn að hljóma aftur um Skagafjörðinn fagra. „FM Trölli sendir Skagfirðingum nær og fjær bestu kveðjur, og mun ekki erfa þetta við músina,“ segir í kveðju Trölla. Feykir hvetur alla til að stilla á hina stórgóðu útvarpsstöð  FM Trölla og líta einnig á heimasíðuna trolli.is.

ÚTSENDINGATÍÐNI FM TRÖLLA ER 103.7 MHZ Í EYJAFIRÐI, Í ÓLAFSFIRÐI, Á SIGLUFIRÐI, Í SKAGAFIRÐI OG Á HVAMMSTANGA

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir