María Dögg Jóhannesdóttir Íþróttamaður Skagafjarðar
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla
20.12.2024
kl. 17.19
Árleg uppskeruhátíð UMSS var haldin hátíðleg fimmtudagskvöldið 19. desember í Húsi frítímans að viðstöddu margmenni. Þar voru veitt hvatningarverðlaun fyrir ungt og efnilegt íþróttafólk, styrkir veittir úr Afrekssjóði UMSS og landsliðsfólki UMSS veittar viðurkenningar. Hápunktur hátíðarinnar var þegar lið ársins, þjálfari ársins og íþróttamaður ársins voru tilkynnt og að þessu sinni var kvennalið Körfuknattleiksdeildar Tindastóls valið lið ársins. Finnbogi Bjarnason var valinn þjálfari ársins og Íþróttamaður ársins í Skagafirði 2024 er María Dögg Jóhannesdóttir frá Knattspyrnudeild Tindastóls en hún hefur leitt lið Tindastóls í efstu deild þar sem Tindastóll er komið til að vera.
Dagskrá hátíðarinnar hófst á því að Viðar Sigurjónsson sérfræðingur hjá ÍSÍ afhenti formanni UMSS, Gunnari Gestssyni, viðukenningarskjal sem staðfesti að UMSS sé áfram Fyrirmyndarhérað ÍSÍ en félagið fékk þessa viðurkenningu fyrst árið 2019. Til að fá þessa viðurkenningu, Fyrirmyndarhérað ÍSÍ, þarf að uppfylla ákveðin skilyrði sem ÍSÍ setur og gildir til fjögurra ára. Þetta gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi var samþykkt á Íþróttaþingi ÍSÍ árið 2015.
Næst tók við að afhenda þeim ungmennum sem tilnefnd voru til hvatningarverðlaunanna en UMSS hefur veitt þessi verðlaun í meira en áratug. UMSS fylgist stolt með öllum þeim iðkendum sem tilnefnd eru og með þessu styrkist tengslanet milli UMSS, iðkenda og foreldra þeirra. Þá var komið að því að tilkynna þá einstaklinga sem fengu styrki úr Afrekssjóði UMSS en í heild voru sjöhundruð og sextíu þúsund krónur veittar til tíu umsækjenda. Þetta eru styrkir sem skipta miklu máli fyrir íþróttafólk sem leggur sérstaklega mikið á sig sem fulltrúar íþróttafélaga, UMSS og í sumum tilfellum landsliðsfólk í sinni íþróttagrein. Átta landsliðsfólki voru veittar viðurkenningar, en þau hafa öll verið kölluð af sínu sérsambandi til að taka þátt í verkefnum á vegum þess á árinu sem er að líða.
Magnús Barðdal og Stefán Úlfur komu fyrir hönd Tindastóls og fengu að nýta tækifærið á þessari hátíð til að tilkynna Íþróttamann Tindastóls árið 2024 og var körfuknattleiksmaðurinn Adomas Drungilas sem fékk þann heiður að bera þennan titil í ár. Þar sem dagskráin gekk furðuhratt fyrir sig var ákveðið að fara í önnur mál. Var t.d. rætt sú hugmynd að halda Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki árið 2026. Góðar undirtektir voru í salnum og mun UMSS ásamt Skagafirði ganga til samninga við UMFÍ um mótið í nánustu framtíð. Skagfirðingar eru góðir gestgjafar og öll aðstaða til að halda Unglingalandsmót er til fyrirmyndar.
Íþróttamaður Skagafjarðar 2024
María Dögg Jóhannesdóttir
Umsögn sem fylgdi tilnefningunni: María Dögg er leiðtogi innan vallar sem utan í meistaraflokksliði Tindastóls sem hélt sæti sínu annað árið í röð í efstu deild í knattspyrnu. María Dögg er einn af reynslu meiri leikmönnum Tindastóls og berst hún fyrir liðið og klúbbinn í öllum þeim einvígjum sem hún tekur sér fyrir hendi og er alltaf klár í að aðstoða aðra leikmenn í að verða betri.
UMSS og Feykir vilja óska öllum þeim einstaklingum sem fengu verðlaun á þessari hátíð til hamingju og í leiðinni óska öllum gleðilegrar hátíðar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.