Maddie Sutton til Akureyrar

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við bandaríska framherjann Maddie Sutton um að leika með liðinu í 1. deild kvenna næsta tímabil og verður þar af leiðandi ekki með Tindastól á næsta tímabili.
Maddie er 24 ára gömul og 183 sentímetra há. Næsta tímabil verður hennar annað ár í atvinnumennsku.
Á síðasta tímabili skoraði Maddie 27 stig að meðaltali í leik. Hún var frákastahæsti leikmaður 1. deildar kvenna með 20 fráköst í leik og næst framlagshæst með rúma 37 framlagspunkta í leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir