Lögreglan ályktar - Þolinmæðin á þrotum

Þolinmæði lögreglunnar er á þrotum vegna sinnuleysi samninganefndar ríkisins gagnvart samninganefnd Landssambands lögreglumanna Á aðalfundi Lögreglufélags Norðurlands vestra var samþykkt svohljóðandi ályktun:

Aðalfundur Lögreglufélags Norðurlands vestra mótmælir sinnuleysi samninganefndar ríkisins gagnvart samninganefnd Landssambands lögreglumanna. Lögreglumenn hafa verið án kjarasamnings á annað ár og lítið þokast í samkomulagsátt. Lögreglumenn hafa sýnt mikið langlundargeð en þolinmæði þeirra er á þrotum. Við skorum á samningsaðila að setjast niður og ná samkomulagi um nýjan kjarasamning fyrir lögreglumenn.  Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt og þurfa því lögreglumenn að beita óhefðbundnum aðferðum til að leggja áherslu á stöðu sína. Einnig velta lögreglumenn innan LNV því fyrir sér hvort að sinnuleysi viðsemjenda okkar og töf á samkomulagi hafi eitthvað með það að gera að verkfallsrétturinn sé ekki til staðar.“

Fyrir hönd aðalfundar Lögreglufélags Norðurlands vestra

Höskuldur B.Erlingsson formaður

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir