Lögfræðingar mótmæla niðurskurði

domstolarad_logo_15566718621Á aðalfundi félags lögfræðinga á norður og austurlandi sem haldinn var nýlega var samþykkt ályktun sem varar við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa mikilvægra embætta á landsbyggðinni sem einkum snúa að héraðsdómstólum, sýslumönnum og skattstjórum.

Fyrir tillögunni mælti Ingvar Þóroddsson lögmaður á Akureyri og er hún eftirfarandi.

 Aðalfundur félags lögfræðinga á Norður- og Austurlandi mótmælir eindregið og varar við framkomnum hugmyndum um sameiningu og niðurlagningu ýmissa mikilvægra embætta sem  nú starfa á landsbyggðinni.  Með þeim tillögum, sem að þessu sinni snúa að héraðsdómstólum, sýslumönnum og skattstjórum, er alvarlega grafið undan þjónustu við íbúa landsbyggðarinnar og lífsgæði þar skert, í flestum tilfellum án þessa að líkur séu á að öðrum og jákvæðari árangir yrði náð.

Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi vill ennfremur árétta, að nái tillaga um sameiningu héraðsdómstóla fram að ganga, er fyrirsjáanlegt að mjög muni fjara undan þeim lögmannsstofum sem nú starfa á landsbyggðinni en þeim fjölgaði er núverandi dómstólaskipan var tekin upp.  Mjög mikilvægt er, að sem víðast á landsbyggðinni bjóðist heimamönnum öflug og vönduð lögmannsþjónusta sem stenst fyllilega samjöfnuð við það sem gerist annarsstaðar á landinu.  Með framkominni tillögu er grundvellinum kippt undan þessum mikilvæga þætti víða á landsbyggðinni.

Félag lögfræðinga á Norður- og Austurlandi vill sérstaklega andmæla því, að núverandi tímabundið efnahagsástand sé notað sem átylla til að koma að tillögum sem fyrst og fremst munu færa umsvif og þjónustu frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir