Líf að færast í Farskólann eftir sumarið

Ingibjört, Arna og Jölkulrós, fjarnemar í hjúkrunarfræði frá HA

Í Farskólanum er nú unnið af kappi við að skipuleggja komandi skólaár. Námsvísir vetrarins er væntanlegur í  öll hús á Norðurlandi vestra eftir nokkra daga.

Þrátt fyrir sumarfrí mættu nokkrir háskólanemar í Námsverið á Sauðárkróki til að læra og skrifa ritgerðir í sumar. Hjúkrunarfræðinemar búa sig undir komandi vetur með því að fara á námskeið í námstækni hjá Margréti náms- og starfsráðgjafa Farskólans. Námskeiðið stendur öllum fjarnemum til boða þeim að kostnaðarlausu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir