Létt dagskrá í tali og tónum í Hólaneskirkju
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
17.11.2009
kl. 09.38
Í kvöld þriðjudagskvöldið 17. nóvember kl. 20:30 verður léttdagskrá í tali og tónum í Hólaneskirkju. Kirkjukór laumbæjarprestakalls í Skagafirði syngur undir stjórn Stefáns R Gíslasonar.
Einsöngvari er Ásdís Guðmundsdóttir. Undirleikarar með kórnum Stefán Gíslason, Margeir Friðriksson og Víglundur Rúnar Pétursson.
Kynnir er sr. Gísli Gunnarsson. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.
Dagskráin er styrkt af minningarsjóðnum um hjónin frá Garði og Vindhæli.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.