Leggja til hækkun á fæðisgjaldi

Gangi breytingarnar eftir verða máltíðirnar 10% dýrari á hinum nýja Árkýl en þær eru í dag.

 Fræðslunefnd Skagafjarðar leggur til við Byggðaráð að gjaldskrá fæðis í leikskólum í Skagafirði verði hækkuð um 10% frá og með áramótum.

Mun hækkunin, ef af verður, fela í sér eftirfarandi breytingar:

 

Morgunhressing 1.604.-         verður 1.764.- á mánuði

Hádegismatur 3.490.-            verður 3.839.- á mánuði

Síðdegishressing 1.604.-        verður 1.764.- á mánuði

Tillögunni var vísað til Byggðaráðs.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir