Kveikt á perunni

ssnv_haus_011Í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku 16. – 22. nóvember n.k. hefur verið ákveðið að bjóða til opinna funda á Norðurlandi vestra.

Líkt og norðurljósin varpa birtu á dimmum vetrarkvöldum er ætlunin að lýsa upp skammdegið með öflugri hugmyndavinnu þar sem unnið verður með tækifæri og möguleika á svæðinu.

Fundarstaðir:

Mælifell, Sauðárkróki, þriðjudaginn 17. nóvember

Félagsheimilið Blönduósi, miðvikudaginn 18. nóvember

Café síróp, Hvammstanga, fimmtudaginn 19. nóvember

Dagskrá:

Kl. 11:00 - Kveikt á perunni - Stutt erindi um hugmyndir og vöruþróun

Kl. 11:15 - Hugmyndasmiðja

Kl. 12:15 - Léttur hádegisverður

Kl. 12:30 - Af fenginni reynslu - Reynslusaga frumkvöðuls

Kl. 13:00 - Hugmyndir og hvað svo?  - Unnið með hugmyndir og næstu skref

Kl. 14:00 - Dagskrárlok

 

 

 

Allir velkomnir án endurgjalds.

Hittumst hress og hugmyndarík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir