Kornuppskeran líklega ónýt eftir næturfrost í Vallhólmi
Aðfaranótt miðvikudags mældist frost í Vallhólmi í Skagafirði og í frétt á mbl.is var haft eftir Bessa Vésteinssyni, bónda í Hofsstaðaseli sem hefur umsjón með kornökrunum á svæðinu, að uppskeran sé líklegast ónýt og því fylgi mikið fjárhagslegt tjón.
Í frétt mbl er einnig vitnað í Gunnar Rögnvaldsson, forstöðumann fræðsluseturs þjóðkirkjunnar á Löngumýri, en hann skellti á miðvikudag í Facebook-færslu þar sem hann hafði myndað bíl á hlaðinu á Löngumýri og rúðurnar voru hélaðar eftir næturfrostið. Hann segir að frost um síðsumar sé ekki nýtt af nálinni í Vallhólmi. Það sé mjög staðbundinn vandi, enda mikið láglendi á svæðinu, sem er aðeins um 11 metra yfir sjávarmáli. „Þetta er samt viðkvæmur tími, þar sem kornið er byrjað að safna í fræið,“ segir Gunnar í samtali við mbl.
Kornið sem Bessi ræktar í Vallhólmi er notað sem fóður fyrir nauteldi. „Við erum með um 50 hektara í kornrækt og það verður væntanlega ekki að korni,“ segir Bessi. Vill hann meina að kornþroskinn sé líklegast hættur á akrinum. „Þetta er áhættan sem fylgir því að rækta á svona miklu láglendi.“
Sjá nánar á mbl.is >
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.