Kennarar á námskeiði um ritlist

Þriðjudaginn 27. apríl s.l.hittust kennarar úr Húnavatnssýslunum á Skagaströnd til að fræðast um ritun. Baldur Sigurðsson, lektor í Háskóla Íslands var þar mættur á vegum Fræðsluskrifstofu A-Hún.

Þar var Baldur  með seinni hluta námskeiðs sem hófst á Degi íslenskrar tungu 16. nóvember sl. Kennararnir á námskeiðinu hittu kollega sína og ræddu þeir m.a. saman í hópum um málefni dagsins auk þess að hlýða á fyrirlestur Baldurs.

Að venju voru allir alsælir þegar þeir héldu heim á leið, enda fátt skemmtilegra en að fræðast um áhugaverða hluti í góðum félagsskap.

/Skagaströnd.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir