Karlareið á Svínavatni
Á morgun laugardag ætlar Hestamannafélagið Neisti að efna til karlareiðar og leggja á Svínavatnið. Farið verður af stað kl. 14.00.
Safnast verður saman norðan við Svínavatn og riðið úr "Bótinni" og haldið suður vatnið að Stekkjardal undir traustri fararstjórn alls um 8 km reið. Að sögn Jóns Kristófers Sigmarssonar hefur Gísli á Mosfelli farið ýtarlega yfir færið á ísnum og telur það gott. –Annars ríðum við bara veginn, segir Jón. Að ferð lokinni verður grillað í Reiðhöllinni Arnargerði við Blönduós.
Í fögru veðri laugardaginn 21. mars á síðasta ári reið hópur hestamanna endilangt Svínavatn. Í upphafi ferðar fór fyrrum garðprófastur, Magnús í Steinnesi með ferðabæn sbr mynd og í heild var feðin frábær. Ísinn mjög góður og á miðju vatni beið hressing fyrir hestana, sem þeir gerðu góð skil. Þá undir kirkju á Svínavatni var komið lyfti Ægir fararstjóri fleig og þakkaði góða ferð.
Svínavatnið er talið um 12 km langt og þrátt fyrir hláku dagana fyrir þessa ferð var varla nokkurs staðar vatn á ísnum og hann mjög traustur.Rétt í byrjun ferðar virtust hestar óöruggir og jafnvel sumir knapar einnig, en mönnum og hestum óx ásmegin eftir því sem lengra út á vatnið kom.
Sammála vorumenn að ferðin hafi verið frábær og mikill áhugi að endurtaka leikinn síðar. Svínavatnið er mikil vannýtt auðlynd, sem stendur vonandi til bóta. Það hefur sannað sig sem einn frábærasti mótsstaður fyrir ísmót og enginn vafi er að fjölmargir almennir hestamann gætu haft hug á að koma með í skipulagða ferð um vatnið.
Meðfylgjandi myndir tók Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum á Svínavatni síðastliðið ár.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.