Kæru sveitungar ! Bréf frá Maddömum

Maddömur í ham á Lummudögum sl. sumar.

Nú er þakið komið á Maddömukot og viljum við þakka ykkur fyrir veittan stuðning, aðstoð og hlýhug.
Maddömur eru ungur og ferskur félagsskapur í mótun. Við höfum í hyggju að skapa okkur ákveðnar hefðir bundnar við vissa tyllidaga ásamt fleiri skemmtilegum uppákomum.
Opið hús verður í Maddömukoti laugardagana 21., 28. nóv. og 5. des. Þar verður margskonar handverk  til sölu. Aldrei að vita nema það passi einstaklega vel í jólapakkana !
Að vanda munum við að sjálfsögðu bjóða upp á hina rómuðu kjötsúpu þegar kveikt verður á jólatrénu.
Langi þig að hafa söluborð í húsi okkar er þér velkomið að hafa samband við Lottu í síma 864-2714.
      Kærar kveðjur, Maddömur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir