Jón leyfir loðnuveiðar

 Sjávarútveg- og landbúnaðarráðherra Jón Bjarnason hefur í dag, ákveðið að heimila veiðar á 130.000 tonnum af loðnu, en þar af koma rúmar 90.000 þús. tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu loðnustofnsins við Ísland.

Hafrannóknastofnun hefur nú mælt loðnustofninn um 530.000 tonn og í kjölfar þess lagt til veiðar á 130.000 tonnum.

Þó hér sé um takmarkað magn að ræða ætti þessi ákvörðun Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að vera mikil gleðitínindi. Gera má ráð fyrir að umrætt magn geti svarað til um 10 milljarða króna verðmæta í útflutningi.

Jón Bjarnason sjvárútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti að sem mestur þjóðhaglegur ábati skapist af þessari auðlind..

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir