Jólasveinar bardúsa ýmislegt

Jólasveinahorn Bardúsu. Mynd: Norðanátt.is

Það er margt að gerast í Bardúsu á Hvammstangab nú fyrir jólin. Heyrst hefur að uppi á lofti hafi jólasveinar vinnustofu í einu horninu.

Hægt verður að skoða jólasveinahornið og gæða sér á nokkrum piparkökum í leiðinni. Þar kennir ýmissa grasa, en sagt er að þar sé hangikjötið hans Ketkróks, bjúgun hans Bjúgnakrækis, mjólkurbrúsar Skyrgáms, kerti sem Kertasníkir hefur sankað að sér og sjónauki Gluggagægis.

Sögustund var fyrir börnin síðasta laugardag og þann 19. desember verður önnur sögustund og byrjar kl. 14:00. Bardúsa fær þá til sín sögumann sem les sögur fyrir börnin í jólasveinahorninu.

Kvenfélagið Freyja verður svo með hýasintusölu í Bardúsu rétt fyrir jólin.

Þá er Verslunarminjasafn Bardúsu, Grettistak og Ferðamálaféalg Vestur Húnvetninga í samstarfsverkefni sem styrkt er af Menningarráði Norðurlands vestra. Á vegum þessa verkefnis verða haldin námskeið í fornu handverki á næsta ári.

palli@feykir.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir