Jamie McDonough nýr þjálfari hjá knattspyrnudeild Tindastól
Englendingurinn Jamie McDonough hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri flokka knattspyrnudeildar Tindastóls. Þá mun Jamie einnig hafa yfirumsjón með æfingum 5.-7. flokks karla ásamt íslenskum þjálfurum og vera með Arnari Skúla Atlasyni í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Í tilkynningu frá knattspyrnudeild Tindastóls segir að Jamie hafi síðastliðin ár starfað fyrir enska knattspyrnusambandið þar sem hann hefur kennt á þjálfaranámskeiðum. Sjálfur er hann menntaður kennari ásamt því að vera með UEFA A knattspyrnuþjálfaragráðu. Loks er hann með diplómu í þjálfun barna og íþróttasálfræði.
Hjá enska knattspyrnusambandinu kenndi Jamie m.a. á þjálfaranámskeiðum, ásamt því að hafa kennt og þjálfað við barna- og unglingaakademíur á Englandi. „Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls bindur miklar vonir við að þarna sé kominn maður sem getur stjórnað þeirri uppbyggingu sem hafin er á yngri flokkum Tindastóls með nýlega fjárhagslega sjálfstæðu unglingaráði. Einnig verður mikilvægt fyrir meistaraflokk karla að fá að njóta þekkingar hans og krafta en Jamie verður í fullri vinnu hjá knattspyrnudeildinni. Við bjóðum Jamie velkominn til starfa en hann er væntanlegur á Sauðárkrók á morgun, laugardaginn 13. júlí og mun hefja störf þegar í stað.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.