Jafntefli í Lengjudeildinni
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
11.06.2022
kl. 21.40
Stólastúlkur gerðu jafntefli gegn Fjarðab/Höttur/Leiknir í lengjudeild kvenna á Sauðárkróksvelli í dag.
Yolanda Bonnin Rosello skoraði fyrir gestina á 12. mínútu en Bryndís Rut náði að jafna fyrir Tindastól á 33. mínútu. Staðan í hálfleik 1-1.
María Dögg kom svo stólastúlkum yfir á 54. mínútu en Ainhoa Plaza Porcel jafnaði metin á 81. mínútu og lokatölur 2-2.
Tindastóll er nú í þriðja sæti Lengjudeildar kvenna eftir sex leiki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.