Iðnaðarmenn að störfum á Króknum
feykir.is
Skagafjörður
13.11.2009
kl. 14.32
Ljósmyndari Feykis skaust einn rúnt í gær og myndaði iðnaðarmenn úr fjarlægð í hádegissólinni. Verið var að vinna við nýja viðbyggingu verknámshúss Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og sömuleiðis voru iðnaðarmenn á fullu við byggingu leikskóla á Króknum. Þá mátti sjá glytta í iðnaðarmenn að verki í glerhýsi Samlagsins og einhver gaur frá Tengli var að bjástra við loftnet og senda á toppi Spítalans.
oli@feykir.is
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.