Íbúafundur í Húnavatnshreppi
Boðað er til almenns íbúafundar um tillögur að aðalskipulagi Húnavatnshrepp 2010-2022. Kynnt verður tillaga að landnotkun fyrir sveitarfélagið í heild og þéttbýli á Húnavöllum og auk þess umhverfisskýrsla aðalskipulagsins.
Í aðalskipulagi er mörkuð stefna sveitarstjórnar um landnotkun í sveitarfélaginu til framtíðar. Tekin eru frá svæði fyrir samgöngu- og þjónustukerfi, atvinnusvæði, íbúðarbyggð, frístundabyggð, verndarsvæði o.fl.
Megin tilgangur fundarins er að gefa íbúum og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögunni til auglýsingar. Skipulagsráðgjafar frá Landmótun gera grein fyrir tillögunum og taka á móti athugasemdum. Fulltrúi Vegagerðarinnar mun kynna tillögu að nýjum stofnvegi, Húnavallaleið.
Íbúar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í. Fundurinn verður haldinn í Húnvallaskóla mánudaginn 1. febrúar n.k. klukkan 20:00
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.