Hýruspor opnar heimasíðu
Hýruspor samtök um hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra sem stofnuð voru í janúar sl. hafa nú opnað heimasíðu www.icehorse.is . Þar er m.a. að finna flokka yfir þá þjónustu sem meðlimirnir Hýruspors bjóða upp á .
Hýruspor eru samtök sem ætla sér stóra hluti í framtíðinni til að efla hestatengda þjónustu á Norðurlandi vestra með samtakamætti sínum. Jón Þór Bjarnason á Sauðárkróki hefur starfað fyrir samtökin og er heimasíðan m.a. afrakstur þeirrar vinnu. Þá hafa samtökin ráðið Halldór Þorvaldsson til að vinna að markaðstarfi o.fl.
Stjórn Hýruspors skipa: Páll Dagbjartsson Varmahlíð formaður, Jón Gíslason Hofi gjaldkeri, Jóhann Albertsson Gauksmýri ritari og meðstjórnendur eru Hjörtur Karl Einarsson Blönduósi og Arna Björk Bjarnadóttir Ásgeirsbrekku.
Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.