Húnavakan við allra hæfi
Dagskrá Húnavöku hófst í dag með bókamarkaði í Héraðsbókasafninu á Blönduósi en nú klukkan hálf sex ætlar Nettur Dúett með þau Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur og Guðmundi Helgasyni innanborðs að halda tónleika í kirkjunni.
Búið er að skreyta bæinn hátt og lágt en það hefur aukist með árunum að íbúar setji upp skrautlega borða, ljós og fleira til að lífga upp á bæinn fyrir Húnavöku eins og segir á Húna.is.
Allir geta fundið eitthvað við sitthæfi en dagskráin er eftirfarandi:
Föstudagur
14:00 - 17:00 Bókamarkaður í Héraðsbókasafninu
17:30 Nettur Dúett – órafmagnaðir og lágstemmdir tónleikar í kirkjunni. Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir söngkona ásamt Guðmundi Helgasyni sem leikur á kassagítar. Miðaverð kr. 1.500, ókeypis fyrir 12 ára og yngri.
21:00 Geirmundur Valtýsson flytur öll sín bestu lög á Glaðheimatúninu við tjaldsvæðið. Aðgangur ókeypis í boði Kráks ehf.
21:00 - 01:00 Tónleikar og dansleikur í íþróttahúsinu. Miðaverð 1.000. Ekkert aldurstakmark: 21:00 Bróðir Svartúlfs
23:00 Svörtu sauðirnir – dansleikur til 01:00
23:00 Bjartmar Guðlaugsson - Tónleikar í Félagsheimilinu. 18. ára aldurstakmark. Miðaverð kr. 1.000.
Laugardagur
10:30 - 11:30 Áheyrnarprufur í Míkróhúninum, söngkeppni barna og unglinga
11:00 - 12:00 Blönduhlaup USAH
12:00 - 12:30 Sögustund í Hafíssetrinu - Ísbjarnasögur
12:00 - 13:00 Hádegistónleikar í kirkjunni - Samkórinn Björk. Miðaverð 1.000.
12:00 Paintball við tjaldsvæðið í Brautarhvammi fram eftir degi
13:00 - 16:00 Fjölskylduskemmtun á torginu:
Setning/hópreið
Gunni og Felix
Skoppa
Bjartmar Guðlaugsson
Bróðir Svartúlfs
Agent Fresco
Míkróhúnninn, söngkeppni barna og unglinga
Verðlaunaafhending í Blönduhlaupi USAH
Barnaleiktæki og hoppkastalar
Meðlimir vélhjólaklúbbsins Smaladrengir sýna hjólin sín á torginu
13:00 - 18:00 Markaður í Ósbæ
14:00 - 17:00 Bókamarkaður í Héraðsbókasafninu
16:00 - 18:00 Jesus Christ Superstar í íþróttahúsinu. Kórar Blönduós- og Hólaneskirkju ásamt hljómsveit og 8 einsöngvurum. Miðaverð kr. 1.000.
20:00 - 22:00 Kvöldvaka í Fagrahvammi:
Félagar úr Björgunarfélaginu Blöndu tendra varðeld
Stórsveit Skarphéðins Einarssonar
Gunni og Felix
Fegrunarverðlaun Blönduósbæjar
Sigurvegarar úr söngkeppni barna og unglinga syngja
Í svörtum fötum
Bakkasöngur og fjöldakassagítarleikur (Sönghefti hér)
23:00 - 03:00 Stórdansleikur í Íþróttahúsinu – Í svörtum fötum. Miðaverð 2.900. Aldurstakmark 16 ár. Forsala í anddyri Félagsheimilisins milli kl. 14:00 og 15:00.
Sunnudagur
10:00 Golfklúbburinn Ós - Opna Gámaþjónustumótið. Skráning á www.golf.is
11:00 - 15:00 Spurningakeppni fyrir krakka í Hafíssetrinu. Þátttakendur geta komið hvenær sem er á tímabilinu.
13:00 - 15:00 Bíósýning í Félagsheimilinu – Skoppa og Skrítla
13:00 - 17:00 Markaður í Ósbæ
14:00 - 17:00 Hátíðardagskrá í Heimilisiðnaðarsafninu
15:00 - 16:00 Leiðsögn um Hafíssetrið með Þór Jakobssyni
16:30 - 17:00 Hafíssetrið: Nafn á hvítabirnuna sem dvelur þar tilkynnt og verðlaun afhent fyrir vinningsnafnið
Alla helgina
Námskeið í Kvennaskólanum þar sem Inese Elferte kennir málun á silki og bómullarefni. Nánari upplýsingar á www.textilsetur.is.
Heimilisiðnaðarsafnið er opið alla daga kl. 10.00 - 17.00. Vakin er athygli á sumarsýningu safnsins "Hring eftir hring".
Landsmót Skotíþróttasambands Íslands á svæði Skotfélagsins Markviss.
Flughátíð á Blönduósflugvelli þar sem m.a. sýnt verður listflug og Þristurinn flýgur um svæðið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.