Hugmyndafundir vegna uppbyggingar í gamla bænum á Blönduósi
Í byrjun september var undirrituð viljayfirlýsing um uppbyggingu í gamla bænum á Blönduósi. Að því tilefni verða haldnir tveir opnir hugmyndafundir dagana 22. og 23. nóvember þar sem safnað verður saman hugmyndum fólks um uppbyggingu gamla bæjarhluta Blönduóss. Fyrri fundurinn verður í Félagsheimilinu á Blönduósi kl. 19 en sá síðari fer fram í Reykjavík.
Í frétt á vef Blönduóss er sagt frá því að einkaaðilar hafi á undanförnum árum verið að byggja upp þjónustustarfsemi í gamla bænum og nú hafa sterkir fjárfestar bæst í hópinn og sveitarfélagið ákveðið að fylgja þessari þróun fast eftir og klára deiliskipulag svæðisins.
„Áður en það er gert vill sveitarfélagið safna saman hugmyndum þeirra sem áhuga hafa á því að leggja þessari vinnu lið og hafa þannig úr sem flestum hugmyndum að moða þegar deiliskipulagið er mótað í endanlegt form. Á hugmyndafundinum mun sveitarfélagið kynna megin drög þeirrar hugsunar sem það hefur sett í þessari vinnu en eins og flestum er kunnugt um hefur vinnan fram að þessu tekið útgangspunkt í skýrslu sem gerð varð um gamla bæinn og Klifamýri þar sem áhersla var lögð á verndarsvæði í byggð,“ segir í fréttinni.
Á fundinum mun InfoCapital einnig kynna sín áform um uppbyggingu en fyrirtækið hefur þegar keypt hótelið, Aðalgötu 9 (þar sem brauðgerð Krútt var til húsa), tvær hæðir í Helgafelli og Pétursborg.
Fundurinn 22. nóvember verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi klukkan 19:00 en fundurinn 23. nóvember verður haldinn í Mengi, Óðinsgötu 2 Reykjavík, klukkan 19:00. Áhugasamir geta séð húsakönnun svæðisins sem gerð var af Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt og fyrirtæki hennar TKJ árið 2015 hér >
FSK Greinarger360 2015.dgn
minjastofnun.is.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.