Hólahátíð um helgina
Hólahátíð verður haldin núna um helgina, 12.-13. ágúst með fjölbreyttri dagskrá.
Pílagrímaferðir, endurútgáfufagnaður sálmabóka, helgistund, kvöldverður, morgunstund í Hóladómkirkju, hátíðarmessa þar sem biskupar Íslands þjóna og hátíðardagskrá þar sem Ásgeir Seðlabankastjóri og Kammerkórinn koma fram, eru á meðal dagskrárliða á hátíðinni í ár.
Pílagrímaferðir
Pílagrímaferðir verða á laugardeginum. Farið verður frá Atlastöðum í Svarfaðardal yfir Heljardalsheiði til Hóla og þar sem sr. Þorgrímur Daníelsson mun leiða þá göngu. Lagt verður af stað frá Atlastöðum klukkan 10.00, en boðið verður upp á bílferð frá Hólum kl. 8.00 um morguninn. Nánari upplýsingar og skráning í síma 893 1804 fyrir fimmtudaginn 10. ágúst. Einnig verður gengið upp í Gvendarskál og verður lagt af stað frá skólahúsinu á Hólum klukkan 13:00. Karl Lúðvíksson leiðir þá göngu.
Endurútgáfufagnaður sálmabóka frá 16. öld
Klukkan 16.00 á laugardeginum verður samkoma í Hóladómkirkju til að fagna endurútgáfu þriggja íslenskra sálmabóka frá 16. öld. Þetta eru handbók og sálmabók Marteins biskups Einarssonar, upphaflega prentuð 1555; sálmabók Gísla biskups Jónssonar 1558 en þeir voru báðir biskupar í Skálholti; og loks sálmabók Guðbrands biskups Þorlákssonar sem kom út á Hólum í Hjaltadal 1589. Sálmabækur Marteins og Gísla innihalda fáeina tugi sálma en í sálmabók Guðbrands eru 343 sálmar. Við 106 sálma í þeirri bók eru nótur við sálmana og er þetta fyrsta bók sem var prentuð á Íslandi og inniheldur nótur, er því merkur áfangi í íslenskri tónlistarsögu.
Þessar þrjár bækur eru nú gefnar út í tveimur bindum undir sameiginlega heitinu: Sálmabækur 16. aldar. Textinn er með nútímastafsetningu. Í formála er gerð grein fyrir uppruna sálma og þróun þeirra á Íslandi, svo og fylgja ítarlegar skýringar. Einnig hafa nóturnar verið aðlagaðar þeirri nótnaskrift sem nú tíðkast. Samanlagt eru bækurnar 600 blaðsíður.
Dagskráin hefst klukkan 16:00 síðdegis og verður með þessum hætti:
- Jón Torfason: Um útgáfuna.
- Karl Sigurbjörnsson: Sálmar og sálmabækur (Bragi Halldórsson flytur).
- Guðrún Laufey Guðmundsdóttir: Lögin í sálmabókinni 1589.
- Kristján Eiríksson: Nýir bragarhættir.
- Elín Gunnlaugsdóttir: Nótnasetning.
Milli atriða verða söngatriði þar sem Gunnlaugur Bjarnason barítónn syngur og í lokin umræður ef tími vinnst til.
Klukkan 18.00 á laugardag verður helgistund í kirkjunni. Tekið verður á móti pílagrímum og skírnarinnar minnst og kl. 19.00 er kvöldverður á Kaffi Hólar.
Morgunsöngur, hátíðarmessa og hátíðardagskrá
Klukkan 10 á sunnudeginum verður morgunsöngur í Hóladómkirkju. Klukkan 14:00 verður svo hátíðarmessa í kirkjunni. Þar prédikar sr. Kristján Valur Ingólfsson fyrrverandi vígslubiskup í Skálholti og þau sem þjóna eru: Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, Gísli Gunnarsson, vígslubiskup á Hólum, Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti og sr. Halla Rut Stefánsdóttir.
Skagfirski Kammerkórinn og kirkjukór Hóladómkirkju syngja undir stjórn Helgu Rósar Indriðadóttur. Organisti er Jóhann Bjarnason. Veitingar verða eftir messu, en klukkan 16:10 hefst hátíðardagskrá í kirkjunni þar sem Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri flytur Hólaræðuna og skagfirski kammerkórinn syngur undir stjórn Helgu Rósar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.