Hólahátíð hefst í kvöld

Hólahátíð 2009 hefst í kvöld og stendur fram á sunnudag 16. ágúst.  Mjög er vandað til dagskrár.  Meðal þess sem boðið er uppá er málþing um prentarfinn á Hólum, pílagrímagöngur og hátíðarsamkoma þar sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra flytur aðal ræðuna.

 

Dagskrá Hólahátíðar:

Föstudagur 14. ágúst

Kl. 20  Málþing í Auðunarstofu um prentarfinn og stofnun prentminjasafns á Hólum.

Menningarminjum mætt - Málfríður Finnbogadóttir

Minjar fortíðar, miðlar nútíðar og framtíðar Birgir Guðmundsson lektor við H. A.

Laugardagur 15. ágúst

Pílagrímagöngur úr tveimur áttum. Annars vegar um Heljardalsheiði frá Atlastöðum í Svarfaðardal kl. 9:00. Hins vegar frá Flugumýri að Hvammsdal svokallaða Biskupaleið. Mæting við Flugumýrarkirkju kl. 7:30.

(Skráning malfridur@holar.is - sjá www.kirkjan.is/holadomkirkja)

Kl. 9  Morgunsöngur í Dómkirkjunni.

Kl. 13  Gengið í Gvendarskál, þar sem vígslubiskup syngur pílagrímamessu við altari Guðmundar góða.  Sr. Bolli Pétur Bollason flytur hugvekju.

Kl. 16  Fornleifarölt mæting við anddyri Hólaskóla

Kl. 18  Tekið á móti pílagrímum í Dómkirkjunni - kvöldsöngur

Kl. 20  Grillveisla

Sunnudagur 16. ágúst

Kl. 9  Morgunsöngur í Dómkirkjunni

Kl.  10.30  Erindi í Auðunarstofu - sr. Ágúst Sigurðsson frá Möðruvöllum minnist þess að 50 ár eru liðin frá því faðir hans, sr. Sigurður Stefánsson, var vígður til biskups í Hóladómkirkju.

Ný hátíðarskrúði fyrir Hóladómkirkju afhentur. Sigríður Jóhannsdóttir og Leifur Breiðfjörð.

Kl. 14  Hátíðarmessa í Hóladómkirkju. Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup, sr. Gunnar Jóhannesson sóknarprestur, sr. Hjörtur Pálsson og sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur þjóna fyrir altari. Sr. María Ágústsdóttir prédikar. Organisti Eyþór Ingi Jónsson. Hátíðarkór Hóladómkirkju leiðir safnaðarsöngundir stjórn Jóhanns Bjarnasonar.  Kristjana Arngrímsdóttir syngur einsöng.

Kl. 15  Hátíðarkirkjukaffi í Hólaskóla.

Kl. 16.30  Hátíðarsamkoma í Dómkirkjunni.  Hólaræðan, Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra. Skáld Hólahátíðar, Vilborg Dagbjartsdóttir. Tónlistarflutningur, Kristjana Arngrímsdóttir syngur og Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel.

Nýr hátíðarskrúði dómkirkjunnar verður að messu lokinni til sýnis í kirkjunni. Sýningin stendur út ágústmánuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir