Heljarmennið og körfubolta hetjan Helgi Rafn á Facebook
feykir.is
Skagafjörður
25.06.2010
kl. 08.34
Mikill þrýstingur er nú á körfuboltamanninn Helga Rafn Viggósson um að skrá sig á samskiptavefinn Facebook. Á síðu sem stofnuð hefur veri til að þrýsta á Helga Rafn segir „Nú er svo komið að afi hans Helga er kominn með facebook og þykir okkur nú nauðsynlegt að hann fylgi í fótspor afa síns og drattist á fésið“
Samkvæmt heimildum Feykis.is mun Helgi gefa sig þegar þrýstingurinn verður óbærilegur en nú þegar hafa 129 einstaklingar þrýst á Helga sem er enn sem komið er nokkuð léttvægur þrýstingur.
Hægt er að gerast meðlimur og skora á Helga hér
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.