Helgi Jónsson í Vísindum og graut

logo-holarFræðslufundaröðin Vísindi og grautur heldur áfram nú á föstudag en að þessu sinni mun Helgi Jónsson, jarðfræðingur, fjalla um Reykjanesskaga, jarðfræði og eldfjallagarða.

 

Það er Ferðamáladeild Háskólans á Hólum sem gengst fyrir þessari  fyrirlestrarröð á haustdögum 2009. Fyrirlestrarnir verða á föstudögum kl. 11.30 í kennslustofu deildarinnar í skólahúsinu á Hólum í Hjaltadal. Að fyrirlestri loknum geta gestir keypt hádegisverð að hætti Hólamanna.

 
Fyrirlestur Helga fjallar um Eldvirkni og höggun móta landslag á Reykjanesskaga á suðvesturhorni landsins. Þar er að finna nánast allar gerðir eldvarpa og þar gengur hryggjarkerfi Mið-Atlantshafsins á land. Uppi hafa verið hugmyndir um að gera svæðið að eldfjallagarði sem byggir á fræðslu, ferðaþjónustu og náttúruvernd. Erindið fjallar um jarðfræði og eldvirkni á Reykjanesskaga og hugmyndir um möguleg svæði inn í slíkan eldfjallagarð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir