Háskólabrú á Sauðárkróki

Miðvikudaginn 30. nóvember verður Keilir með opinn kynningarfund um Háskólabrú í Farskólanum á Sauðárkróki en Keilir er miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs á Suðurnesjum. Þar verður hægt að fræðast um Háskólabrú í staðnámi og fjarnámi sem hægt er að sækja bæði með og án vinnu.

Alls hafa 2371 einstaklingur lokið náminu og hefur Keilir markað sér sérstöðu í að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðning við nemendur. Kennsluhættir miða við þarfir fullorðinna nemenda, miklar kröfur eru gerðar um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru raunhæf verkefni lögð fyrir.

„Við veitum nemendum okkar persónulega þjónustu og reynum að efla sjálfstraust þeirra og sjálfstæði. Forstöðumaður Háskólabrúar kynnir fyrirkomulag námsins auk þess sem námsráðgjafi svarar spurningum gesta,“ segir í tilkynningu Keilis.

Kynningin byrjar kl. 17.00 og eru allir velkomnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir