Halloween á Króknum - myndasyrpa

Ljósmyndir - Ragndís Hilmarsdóttir / Sigríður Garðarsdóttir
Ljósmyndir - Ragndís Hilmarsdóttir / Sigríður Garðarsdóttir

Halloween er yfirleitt fagnað þann 31. október en á Króknum var slegið í grikk og gott göngu seinnipartinn á laugardeginum í blíðskaparveðri með dass af smá kulda. Krakkarnir létu það að sjálfsögðu ekki á sig fá og fóru af stað alls konar skrímsli, draugar og furðuverur að sníkja smá gotterí. Feykir fór af stað á kústinum og tók nokkrar myndir ásamt því að fá í lið með sér Ragndísi Hilmarsdóttur sem var einnig með myndavélina á lofti.

Feykir endaði svo daginn með að þjóta í Glaumbæ þar sem búið var gera gamla bæinn skuggalegan og lesnar voru draugasögur í baðstofunni sem var hin mesta skemmtun. Það sem stóð upp úr á þessum frábæra degi var að sjá hversu margir tóku þátt í gleðinni á Króknum bæði ungir og aldnir. Starfsmenn Glaumbæjar voru einnig ánægðir með daginn hjá sér og var aðsóknarmet slegið á þessum degi þegar 300 manns sóttu Glaumbæ heim, sem er frábært. Má ætla að þessi dagur sé að festa sig í sessi á þessum slóðum því þetta er í þriðja skiptið sem skipuleggjendur grikk og gott göngunar taka sig til og halda utan um daginn svo krakkarnir fái að njóta dagsins og sendum við þeim miklar þakkir fyrir. 

Á Vísindavefnum er Halloween skilgreint svohljóðandi...

Hrekkjavaka nefnist á enskri tungu Halloween sem er annar ritháttur fyrir Hallowe’en. Hallowe’en er svo stytting á nafninu All Hallows’ Evening eða All Hallows’ Eve sem er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar. Upphaflega var Allraheilagramessa haldin hátíðleg 1. maí hvers árs, en árið 834 var dagsetning hennar færð yfir á 1. nóvember, fyrst og fremst vegna þess að henni var ætlað að koma í staðinn fyrir ýmsar mikilvægar heiðnar hátíðir sem haldnar voru á sama tíma.

Hrekkjavaka er kvöldið 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar.

Í mörgum evrópskum löndum, þar á meðal á Íslandi og hinum Norðurlöndunum auk keltneskra landa, var árinu skipt í tvær árstíðir fremur en fjórar, eða í vetur og sumar. Menn töldu tímann í vetrum og nóttum fremur en í árum og dögum. Veturinn, eins og nóttin, var talin koma fyrst; mánaðamót október og nóvember var því tími vetrarbyrjunar, og þar með nýárs. Þá tóku kuldinn og myrkrið við, jörðin sofnaði og dauðinn ríkti. Á Íslandi til forna var í lok október haldin hátíð sem kölluð var veturnætur og þá var haldið dísablót á Norðurlöndum (disting). Í norðurhluta Skotlands og á Írlandi er á þessum tíma enn haldin hátíð sem á gelísku heitir Samhain, hátíð hinna dauðu. Í seinni tíð hefur hún fengið heitið Hallowe’en.

Upphaf vetrar og árs er það sem kallað er liminal tímabil, einhvers konar millibilsástand sem ríkir á tímum mikilla umskipta. Þá geta menn jafnvel skynjað handanheima; þeir sjá drauga og álfa, og geta spáð í framtíðina. Greinilegt er að andar voru taldir vera á kreiki á bæði Samhain og veturnóttum (sjá til dæmis Þiðranda þátt og Þórhalls).

Hefð myndaðist fyrir því að á Samhain/Hallowe’en væri brennandi kertum komið fyrir í útskornum næpum og á Írlandi og í Skotlandi tíðkaðist að kveikja í bálköstum. Einnig fóru bæði unglingar og fullorðnir á milli húsa klæddir búningum og með grímur, eins og nú tíðkast á öskudegi Íslendinga, og gerðu öðrum gjarnan einhvern grikk í leiðinni.

Þegar Írar og Skotar fluttust búferlum til Ameríku á 19. öld fluttist Hallowe’en hátíðin með þeim. Í Bandaríkjunum uxu aftur á móti grasker sem voru mun stærri en næpurnar og auðveldari að skera út. Þannig tóku graskerin við af næpunum sem tákn fyrir Halloween Bandaríkjamanna.

Sökum kristnitökunnar lögðust veturnætur smám saman af. Sömuleiðis hurfu margar gamlar kaþólskar hátíðir við siðaskiptin, eða þegar lúterskur siður tók við af kaþólskri trú. Vegna áhrifa frá bandarísku sjónvarpi og kvikmyndum verður þó æ algengara að Norðurlandabúar haldi upp á hrekkjavöku að bandarískum sið. Ýmsir hafa ýtt undir þessa þróun, til að mynda dagblöð, verslanir og jafnvel nemendur í enskudeild Háskóla Íslands. Lítill áhugi virðist þó vera á því að fá krakka í búningum til að ganga um og betla nammi, eins og þeir gera gjarnan á hrekkjavöku í Bandaríkjunum, enda er þegar hefð fyrir slíku hér á öðrum tímum ársins. Fremur hafa háskóla- og framhaldskólanemar, sem ekki eiga lengur kost á að fara á gömlu sveitaböllin á þessum tíma, tekið upp á því að halda ýmiss konar hrekkjavökugrímuböll og grímupartý. Enn sem komið er, að minnsta kosti, er hrekkjavaka Norðurlanda því fyrst og fremst unglingahátíð, rétt eins og Hallowe’en á Írlandi og Skotlandi var forðum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir