Hákon Ingi Rafnsson endaði í 3. sæti í lokamóti Íslandsbankaraðarinnar
Lokamót Íslandsbankamótaraðar barna og unglinga fór fram um síðustu helgi á golfvelli Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar (GKG ) á Leirdalsvelli. Keppt var í flokkum frá 14 ára og yngri og upp í 21 árs aldur. Golfklúbbur Sauðárkróks átti þrjá þátttakendur á þessu móti.
Á heimasíðu GSS segir að veður hafi sett svip sinn á mótið því alla jafna eru spilaðar 36 holur í flestum flokkum nema í tveimur elstu, þar eru spilaðar 54 holur. Veður var hins vegar með þeim hætti á laugardeginum að keppni var aflýst og mótið því klárað á sunnudeginum.
Hákon Ingi Rafnsson sem lék í flokki 15-16 ára spilaði frábært golf á sunnudeginum og lék á 71 höggi eða pari vallarins sem skilaði honum í 3. sæti í þessum gríðarsterka flokki. Sannarlega góður árangur hjá honum þar sem hann lék 14 holur á pari, fékk tvo fugla og tvo skolla og niðurstaðan því par vallarins.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.