Gul veðurviðvörun!
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
22.12.2024
kl. 21.01
Lögreglan á Norðurlandi vestra vekur athygli á slæmri veðurspá næstu daga. Gul veðurviðvörun tekur gildi kl.04.00 í nótt aðfaranótt þorláksmessu og er til 10.00 í fyrramálið. Aftur brestur á með gulri viðvörun kl.19.00 og er fram á aðfaranótt aðfangadags. Suðaustan 15-23 m/s með vindhviðum allt að 35-40 m/s við fjöll. Sum sé varasamt ferðaveður á milli landshluta.
Fylgist vel með veðurspám og færð og veðri á vefjum Veðurstofunnar og Vegagerðarinnar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.