Greiðfært á Norðurlandi vestra
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla
25.02.2010
kl. 09.30
Allir helstu vegir á Norðurlandi vestra eru greiðfærir en víða er hált. Snjókoma og skafrenningur er á Vatnskarði og Þverárfjalli og skafrenningur á Holtavörðuheiði og rétt að vara við hálku.
Veðurspáin gerir ráð fyrir norðaustan 10-18 m/s, éljagangi og hvassast á annesjum. Frost 3 til 11 stig, kaldast í innsveitum fram til síðdegis á morgun.
- Veðurhorfur á landinu næstu daga
- Á laugardag og sunnudag:
- Austlæg átt, víða 8-13 m/s og snjókoma með köflum eða él. Frost 0 til 8 stig, en 0 til 5 stiga hiti syðst.
- Á mánudag og þriðjudag:
- Suðaustanátt, slydda eða rigning með köflum S- og V-lands en þurrt að mestu fyrir norðan og austan. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost á N- og A-landi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.