Golfmaraþon barna og unglinga í Golfklúbbi Sauðárkróks
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
27.07.2018
kl. 09.16
Börn og unglingar í Golfklúbbi Sauðárkróks héldu golfmaraþon, fimmtudaginn 19. júlí síðastliðinn. Þau hófu daginn kl. 9 og var markmiðið að spila að minnsta kosti 1.000 holur. Sagt er frá þessu á vef Golfklúbbsins.
Þegar kl. var orðin 18 höfðu þau, þá með aðstoð fjölskyldna og annarra klúbbfélaga, spilað alls 1.541 holu. Dagurinn heppnaðist því ljómandi vel og allir mjög sáttir með árangurinn.
Krakkarnir og golfklúbburinn vilja koma á framfæri kæru þakklæti til allra sem tóku vel á móti þeim og styrktu með áheitum og jafnframt til þeirra sem lögðu þeim lið.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.