Góð þátttaka á Grunnskólamóti UMSS

umssFrjálsíþróttaráð hélt Grunnskólamót UMSS fimmtudaginn 10. september s.l. á Sauðárkóksvelli.  Góð þátttaka var á mótinu sem þótti takast vel.

Keppendur voru um 130, og komu frá Árskóla, Varmahlíðarskóla, Grunnskólanum Austan-Vatna auk góðra gesta frá Siglufirði. Mikið fjör og spennandi keppni og ástæða er til að þakka "veðurguðunum" og nemendum Íþróttabrautar FNV, sem veittu ómetanlega hjálp við mótið,segir á heimasíðu Tindastóls.

Úrslit mótsins er hægt að nálgast HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir