Uppskrift af gamaldags brauðtertu m/baunasalati - þriggja laga
Uppskrift af gamaldags brauðtertu m/baunasalati – þriggja laga
Gott að byrja á henni daginn áður en boðið er upp á hana.
Byrjar á að skera skorpuna af þrem sneiðum af brauðtertubrauðsneiðum, reynið að skera þær alveg nákvæmlega eins.
Blandar saman í skál
- Ora blandað grænmeti í dós – 420gr.(hálfdós)
- 1 pakka af taðreyktu hangikjöti frá Kjarnafæði – skorið í litla bita
- 350 gr. af létt majónesi
Hræra vel saman
Setur svo eina brauðsneið á tertudisk, smyrjið helminginn af maukinu á,
setur svo aðra brauðsneið ofan á, smyrð svo á hana og svo endar maður á að setja þriðju og síðustu brauðsneiðina ofaná.
Passar að smyrja maukinu vel út á kanntana. Pressir svo létt ofan á efsta brauðið til að þjappa aðeins.
Setja poka utan um og inn í kælir.
Daginn eftir tekur maður svo 150 gr. af létt majónesi og blandar saman við hálfa dollu af sýrðum rjóma eða þeyttum rjóma og smyrð þessari blöndu á brauðtertuna, ofaná og hliðarnar.
Mjög mikilvægt er að blanda sýrða eða þeytta rjómanum við majónesið því ef það er ekki gert gulnar tertan ef hún stendur í smá stund við stofuhita. Þegar búið er að smyrja vel á - ekki of þykkt og ekki of þunnt, en samt þannig að þetta þekur vel og brauðið þorni ekki upp, þá má byrja að skreyta og í það er notað
- gúrku
- tómata
- papríku, gula eða rauða
- steinselju
- vínber
- hægt að nota restina af blöndunni ef það er eitthvað eftir
Svo bara láta hugmyndaflugið ráða
Góða helgi
Siggasiggasigga
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.