Gæsaveisla um helgina á Gauksmýri

gauksmyriNæstkomandi laugardag 14. nóvember verður haldin gæsaveisla á Sveitasetrinu Gauksmýri enda spyrja veisluhaldarar hvað sé notalegra en að setjast niður í skammdeginu í notalegu umhverfi í góðra vinahópi og njóta villibráðar?

 Matreiðslumenn eru veiðimennirnir Kjartan Sveinsson og Jón Óskar Pétursson sem betur eru þekktir fyrir önnur störf en kunna ýmislegt fyrir sér á þessu sviði. Nokkur sæti eru ennþá laus og er um að gera að panta hið fyrsta.

 Matseðillinn er glæsilegur eða réttara sagt gæsalegur.

Forréttur: Grafin gæs, reykt gæs og gæsalifrarpaté
Aðalréttur: Steiktar gæsabringur með tilheyrandi meðlæti
Eftirréttur: Súkkulaðikaloríubomba

Verð 4.900 kr/mann.

Tilboð á gistingu.
Pantanir í síma 451-2927 eða 869-7992 eða gauksmyri@gauksmyri.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir