Fyrsta árs nemar tré-, málm- og rafiðnadeilda FNV fá vinnuföt og öryggisbúnað
Öryggismál eru stór hluti af náminu í verknámsdeildum FNV og nemendur þurfa að tileinka sér að setja öryggið alltaf á oddinn. Þetta kemur fram í frétt á vef Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra en miðvikudaginn 2. nóvember var formleg afhending þar sem nemendur á fyrsta ári í fengu vinnuföt og öryggisbúnað. Ennfremur kemur fram að FNV sé fyrsti verknámsskóli landsins sem stendur fyrir slíku verkefni fyrir allar verknámsdeildir skólans.
Nemendur, kennarar og styrktaraðilar voru viðstaddir afhendinguna og gerði Ingileif Oddsdóttir, skólameistari, grein fyrir verkefninu og þakkaði styrktaraðilum fyrir veglegan stuðning. Þórhallur Matthíasson, sölufulltrúi Haga ehf., lýsti aðkomu Byko og Haga að verkefninu.
Rafiðnadeild
Byko og Hagi styrkja verkefnið á landsvísu, líkt og undanfarin ár en auk þeirra og skólans styrkir K-Tak tréiðnadeild, FISK Seafood og Kjarninn KS styrkja málmiðnadeild, Átak og Tengill styrkja rafiðnadeild. Mikil ánægja er meðal nemenda og starfsfólks skólans með verkefnið og færir skólinn styrktaraðilum bestu þakkir.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.