Framkvæmdir við smábátahöfnina á Sauðárkróki

Á Sauðárkróki er nú unnið að malbikun á svæðinu við smábátabryggjuna í samræmi við samþykkt deiluskipulags Sauðárkrókshafnar.

Sjá má á myndinni hér fyrir ofan hvað stendur til að gera en margir hafa beðið eftir að gengið yrði sómasamlega frá þessu svæði við norðurenda Aðalgötunnar sem sannarlega hefur lengi beðið eftir andlitslyftingu . Það verður spennandi að sjá útkomuna en meðal þess sem sjá má á myndinni eru malbikaðir stígar, melgresishólar, timburpallur og hafnartorg sem er í vinnslu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir