Forskot á sæluna í kvöld
Komin er endanleg mynd á dagskrá Kántrýdaga sem haldnir verða um næstu helgi, 14 til 16. ágúst. Forskot verður tekið á sæluna í kvöld þegar Skagstrendingar ætla að hittast og skreyta bæinn sinn.
Skemmtidagskrá helgarinnar er sérlega glæsileg og munu bæjarbúar, fyrirtæki og félög taka höndum saman um að gera hátíðina sem skemmtilegasta.
Dagskrá Kántrýdaga
Fimmtudagur 13. ágúst
Götur Skagastranda skreyttar
23:00 Upphitun í Kántrýbæ
Hljómsveitin Fúsleg helgi hitar upp fyrir á Kántrýdaga, frítt inn
Föstudagur 14. ágúst
18:00 Kántrýdagar hefjast með fallbyssuskoti
18:00 - 19:00 Lokadagur á Kofavöllum
Smábæingar bjóða alla velkomna
17:00 Ljósmyndasýning í Bjarmanesi, kjallara
Helena Mara sýnir myndir frá Skagaströnd
17:00 - 20:00 Myndlistarsýning í Gamla kaupfélaginu
Solitude, Samsýning listamanna frá Lettlandi, Þýskalandi og
Íslandi
19:00 - 21:00 Hoppukastalar við hátíðarsvæði
19:00 - 20:00 Kántrýsúpa í hátíðartjald
BioPol ehf. býður - allir velkomnir
20:00 - 22:00 Spádómar í Árnesi
Spáð í spil, bolla og lesið í lófa
20:00 - 21:30 Dagskrá í hátíðartjaldi
Angela og Basombrio bandið
Valdi og Anna frá Dagsbrún
Trúbadorinn Íris frá Búðardal ásamt félögum
21:00 Uppistand í Bjarmanesi
Madame Klingenberg með uppistand og spádóma
21:30 - 23:00 Varðeldur og söngur á Hólanesi
Allir sem eiga hljóðfæri eru hvattir til að koma með þau; gítar,
munnhörpu, trommur, flautur o.s.frv.
23:00 - 3:00 Ball í Kántrýbæ
Hljómsveitin Sólon heldur uppi fjörinu
24:00 Tónleikar í Bjarmanesi
Fannar, Haffi og gestir leika af fingrum fram
Laugardagur 15. ágúst
10:00 Þórdísarganga á Spákonufell
Lagt upp frá golfskálanum
11:00 - 13:00 Dorgveiðikeppni á höfninni, verðlaun fyrir þyngsta fiskinn
12:00 Fallbyssuskot við Bjarmanes
12:00 Ljósmyndasýning í Bjarmanesi, kjallara
Helena Mara sýnir myndir frá Skagaströnd
13:00 - 16:00 Bílskúrssala á Bogabraut 13
Kolaportsstemming, bækur, hákarl, sultur og fleira og fleira
13:00 - 17:00 Myndlistarsýning í Gamla kaupfélaginu
Solitude, Samsýning listamanna frá Lettlandi, Þýskalandi og Íslandi.
13:00 - 20:00 Hoppukastalar við hátíðarsvæði
13:00 - 16:00 Veltibíll Sjóvár verður á hátíðarsvæðinu
14:00 - 18:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Til sýnis með húsbúnaði frá fyrri hluta 19. aldar
14:00 Sjónlist, hljóðlist og ljóðlist í Nes listamiðstöð
Komið með pensla, sögur eða bara ykkur sjálf og takið þátt í listsköpun með Jess, Liz og Pat.
14:30 - 15:30 Hláturjóga í Bjarmanesi
Angela Basombrio býður upp á einstakt jóga
15:00 - 17:00 Bjarmanes
Valdi frá Dagsbrún kynnir nýja diskinn, „Ó borg mín“
15:30 - 17:00 Barna- og fjölskylduskemmtun í hátíðartjaldi
Ævintýrakistan
Kántrýdansar
Frímínútnakórinn
Kynnir er Atli Þór Albertsson
16:00 - 18:00 Opið hús í Nes listamiðstöð
Listamenn bjóða gestum að skoða verk sín og vinnustofur
18:00 - 20:30 Útigrill við hátíðartjald
Heitt í kolunum og frumlegasti útbúnaðurinn við grill verðlaunaður
20:00 - 22:00 Spástofan í Árnesi og Spákonutjaldið
Spáð í spil, bolla og lesið í lófa
20:30 - 23:00 Dagskrá í hátíðartjaldi
Skaggastelpusveitin Snúsnúbandið og þrír stæltir dansarar
Guðlaugur Ómar
Tríó VB
Hljómsveitin Earendel
Lúgubandið
Ingó og Veðurguðirnir
Bróðir Svartúlfs
Kynnir er Atli Þór Albertsson
23:00 Tónleikar í Bjarmanesi
Angel og Basombrio bandið
Fannar, Haffi og gestir leika af fingrum fram
23:00 - 3:00 Ball í Kántrýbæ
Ingó og Veðurguðirnir í banastuði
Sunnudagur 16. ágúst
12:00 Fallbyssuskot við Bjarmanes
12:00 Ljósmyndasýning í Bjarmanesi, kjallara
Helena Mara sýnir myndir frá Skagaströnd
13:00 - 17:00 Myndlistarsýning í Gamla kaupfélaginu
Solitude, Samsýning listamanna frá Lettlandi, Þýskalandi og Íslandi.
13:30 - 14:30 Gospelmessa í hátíðartjaldi
14:00 - 17:00 Kaffihlaðborð í Bjarmanesi
Angela syngur
15:00 - 17:00 Árnes, elsta húsið á Skagaströnd
Til sýnis með húsbúnaði frá fyrri hluta 19. aldar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.